VAKINN kynntur erlendis

VAKINN er nýkominn úr vinnuferð til fjögurra Evrópulanda.

VAKINN er nýkominn úr vinnuferð til fjögurra Evrópulanda.

Ferðast var með Íslandsstofu og fulltrúum nokkurra íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja til Berlínar, Frankfurt, Amsterdam og París og VAKINN kynntur fyrir erlendum ferðaskrifstofum og blaðamönnum. Þessir aðilar voru mjög áhugasamir um VAKANN og munu vonandi í framhaldinu leita í auknum mæli til þeirra fyrirtækja sem eru í VAKANUM.
Í maímánuði fer VAKINN aftur af stað og verður með kynningu fyrir ferðaskrifstofur og blaðamenn á Norðurlöndum.