VAKINN á Vestnorden – afsláttur framlengdur

VAKINN verður kynntur á Vestnorden ferðakaupstefnunni sem haldinn verður í Hörpu 2. og 3. október næstkomandi. Af því tilefni hefur verið ákveðið að framlengja afsláttinn á umsóknargjaldinu til 1. nóvember næstkomandi. Sem sagt 40% afsláttur, það munar um það :-)

Vestnorden ferðakaupstefnan er haldin af Ferðamálasamtökum Norður-Atlantshafsins (NATA), sem er samstarfsvettvangur Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála. Vestnorden haldin til skiptis af löndunum þremur, þar af annað hvert ár á Íslandi.

Kaupendur víða að
 
Á Vestnorden koma saman ferðaþjónustuaðilar á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum og kaupendur ferðaþjónustu, eða ferðaheildsalar, víðs vegar að úr heiminum. Þá koma einnig til kaupstefnunnar blaðamenn og boðsgestir. Í tengslum við Vestnorden gefst ferðaheildsölunum einnig kostur á að fara í kynnisferðir til landanna þriggja.

" Endilega komið við hjá í VAKA-básnum á Vestnorden, spjallið við Áslaugu, Öldu og Elías og fáið allar upplýsingar.