Þátttakendum í Vakanum fjölgar um tvo

Upplýsingamiðstöð Suðurlands og Hveragarðurinn
Upplýsingamiðstöð Suðurlands og Hveragarðurinn
Þátttakendum í Vakanum fjölgaði um tvo nýverið þegar Upplýsingamiðstöð Suðurlands og Hveragarðurinn í Hveragerði bættust í hópinn.

Nú styttist í hundraðasta fyrirtækið í Vakanum en þátttakendum fjölgaði um tvo nýverið þegar Upplýsingamiðstöð Suðurlands og Hveragarðurinn í Hveragerði bættust í þann glæsilega hóp sem fyrir er í Vakanum.

Upplýsingamiðstöðin, sem staðsett er í verslunarmiðstöðinni Sunnumörk í Hveragerði, hefur verið starfrækt síðan 1999 og er opin alla daga ársins nema á stórhátíðardögum. Bakhjarlar upplýsingamiðstöðvarinnar eru Hveragerðisbær, Ferðamálastofa og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga. Sífellt fleiri gestir heimsækja upplýsingamiðstöðina ár frá ári en um 250 þúsund gestir heimsóttu upplýsingamiðstöðina árið 2016.

Hveragarðurinn Hveragerði, sem staðsettur er í miðju bæjarins, er einstakur fyrir það að hvergi annars staðar í heiminum er virkt hverasvæði í miðjum bæ. Garðurinn er opinn alla daga og tekur á móti ferðamönnum, einstaklingum og hópum í margskonar dagskrá  sem tengist jarðhitanum. Garðurinn er í eigu Hveragerðisbæjar.

Á myndinni eru frá vinstri Karen Björk Sigríðardóttir og Kjartan Guðmundsson starfsmenn Upplýsingarmiðstöðvarinnar og Sigurdís Lilja Guðjónsdóttir forstöðumaður Upplýsingamiðstöðvarinnar og Hveragarðsins.

Við hjá Vakanum óskum þeim innilega til hamingju með glæsilegan árangur og bjóðum þau velkomin í hópinn.