Tanni Travel - Rótgróið fjölskyldufyrirtæki á Austurlandi

Díana Mjöll Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Tanna Travel fyrir miðju. Vinstra megin við hana er Sigurb…
Díana Mjöll Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Tanna Travel fyrir miðju. Vinstra megin við hana er Sigurbjörn sem er yfirmaður bíladeildar og hægra megin Ragnar Þórðarson frá Vottunarstofunni Tún.

Tanni Travel lauk á dögunum innleiðingarfeli Vakans og hefur nú fengið vottun sína afhenta. Tanni Travel er rótgróið fjölskyldufyrirtæki, staðsett á Austurlandi, sem rekur ferðaskrifstofu og hópbifreiðar. Fyrirtækið býður uppá heildarlausnir fyrir hópa, skipuleggur ferðir um allt Ísland en sérhæfir sig í Austurlandi. Viðskiptavinir Tanna Travel eru bæði Íslendingar og erlendir ferðamenn.

Að sögn Díönu Mjallar Sveinsdóttur framkvæmdastjóra er hverju fyrirtæki mikilvægt að líta inn á við og horfa á sig gagnrýnum augum til uppbyggingar. „Að leggja í vinnu við að innleiða Vakann er krefjandi og öllum hollt. Eftir stendur sterkara fyrirtæki sem stuðlar að bættum gæðum í ferðaþjónustu og eflir umhverfisvitund starfsmanna og viðskiptavina. Við leggjum okkur fram við að vera leiðandi í ferðaþjónustu á Austurlandi og er það von okkar að sem flest fyrirtæki á Austurlandi innleiði Vakann,“ segir Díanna Mjöll.

„Á bak við þessa vottun er mikil vinna starfsmanna Tanna Travel og erum við stolt af þessum tímamótum. Við óskum starfsmönnum okkar til hamingju og hlökkum til framhaldsins þar sem við setjum okkur háleit markmið með gæða- og umhverfismál í fyrirrúmi,“ bætir hún við.