Stjörnum prýtt hótel - Radisson Blu 1919 Hótel fær stjörnuflokkun Vakans

Okkur er sönn ánægja að tilkynna að Radisson Blu 1919 Hótel í Reykjavík er nýr þátttakandi í gæðakerfi Vakans. Hótelið hefur nú farið í gegnum og staðist gæðaúttekt Vakans sem byggð er á viðurkenndum samevrópskum gæðaviðmiðum Hotelstars.eu. Samkvæmt þeim flokkast Radisson Blu 1919 sem fjögurra stjörnu hótel.

Mynd: Bergþóra Bjarnadóttir, yfirmaður gistisviðs Radisson Blu 1919 Hótel og Marc Eberhard hótelstjóri með viðurkenningu Vakans.

Okkur er sönn ánægja að tilkynna að Radisson Blu 1919 Hótel í Reykjavík er nýr þátttakandi í gæðakerfi Vakans. Hótelið hefur nú farið í gegnum og staðist gæðaúttekt Vakans sem byggð er á viðurkenndum samevrópskum gæðaviðmiðum Hotelstars.eu. Samkvæmt þeim flokkast Radisson Blu 1919 sem fjögurra stjörnu hótel.

„Starfsfólk hótelsins leggur allan sinn metnað í að veita gestum faglega og framúrskarandi þjónustu, eins og önnur Radisson Blu hótel, og með innleiðingu á gæðakerfinu hefur reksturinn verið tekinn út samkvæmt ítarlegum viðmiðum sem við erum afar ánægð með að hafa farið í gegnum. Það er alltaf gott að fá utanaðkomandi aðila til að skoða og meta það sem við erum að gera og einnig teljum við það mikilvægt að taka þátt í faglegri uppbyggingu ferðaþjónustu á Íslandi," segir Bergþóra Bjarnadóttir yfirmaður gistisviðs hjá Radisson Blu 1919, sem segist ennfremur hlakka til áframhaldandi samstarfs á komandi árum.

Við hjá Vakanum getum sannarlega tekið undir það og óskum forsvarsmönnum og starfsfólki öllu innilega til hamingju með glæsilegan áfanga.