Sky Lagoon, sem verið hefur með vottun Vakans frá því í febrúar 2024, náði nýlega þeim glæsilega árangri að fá gullmerki í umhverfishluta en fyrirtækið hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á sjálfbærni, umhverfisvernd og tengingu við íslenska náttúru.
"Að sækja grunnstoðir fyrirtækisins í íslenska náttúru væri innantómt hjóm ef því fylgdi ekki ábyrg og markviss sjálfbærnistefna. Sjálfbærni er vegferð sem lýkur aldrei og krefst stöðugrar endurskoðunar, mælinga og vilja til að gera sífellt betur. Hjá Sky Lagoon höfum við frá upphafi lagt áherslu á að samþætta sjálfbærni í daglegan rekstur, allt frá skýrum innkaupaviðmiðum og siðareglum fyrir birgja yfir í markvissa fræðslu og bætta flokkun á vinnustaðnum“ segir Ásrún Ísleifsdóttir, gæða-, umhverfis- og öryggisstjóri.
„Með grænu bókhaldi og útreikningum á kolefnisspori höfum við öðlast skýra mynd af umhverfisáhrifum okkar og séð áþreifanlegan árangur. Árið 2025 náðum við lægsta kolefnisspori frá upphafi, ásamt sögulega góðu flokkunarhlutfalli, sem markar mikilvægan áfanga sem við erum stolt af. Gullvottun Vakans staðfestir þessa vinnu, en hún er umfram allt hvatning til að halda áfram af fullri ábyrgð gagnvart náttúru, samfélagi og komandi kynslóðum" segir Ásrún ennfremur.
Ferðamálastofa óskar forsvarsmönnum og starfsfólki Sky Lagoon innilega til hamingju með frábæran árangur.
+ 354 535 5500
vakinn@vakinn.is
Fylgdu okkur
