Skriðuklaustur er nýr þátttakandi

Skúli Björn Gunnarsson
Skúli Björn Gunnarsson
Nýjasti þátttakandinn í VAKANUM er Skriðuklaustur, menningar- og sögustaður í Fljótsdal en það er fyrsta menningarsetrið í VAKANUM.

Starfsemi Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri hófst árið 2000 og í dag er staðurinn einn af fjölsóttari ferðamannastöðum á Austurlandi. Gestir fá leiðsögn um hús Gunnars Gunnarssonar, kynnast ævi skáldsins og störfum og geta skoðað sýningu um miðaldaklaustrið sem stóð á 16. öld á Skriðuklaustri og var grafið upp á árunum 2000-2012. Á hverju ári heimsækja nú 30-40 þúsund gestir Skriðuklaustur.

Á myndinni er Skúli Björn Gunnarsson forstöðumaður Gunnarsstofnunar með viðurkenningu VAKANS.