Nordic Visitor í VAKANN

Ferðaskrifstofan Nordic Visitor er nýjasti þátttakandinn í gæðakerfi VAKANS.

Ferðaskrifstofan Nordic Visitor er nýjasti þátttakandinn í gæðakerfi VAKANS.

Við erum sérlega ánægð að fá þetta öfluga fyrirtæki til liðs við okkur. Ferðaskrifstofan var stofnuð árið 2002 og sérhæfir sig í ferðum um Norðurlöndin. Aðalskrifstofa Nordic Visitor er á Íslandi en einnig er ferðaskrifstofan með útibú í Stokkhólmi. Nordic Visitor býður upp á pakkaferðir og sérsniðar ferðir og mikil áhersla er lögð á gæði og góða þjónustu.
Á myndinni eru Þórlaug Sæmundsdóttir og Hafdís Þóra Hafþórsdóttir hjá Nordic Visitor sem veittu viðurkenningu VAKANS viðtöku.

 Þórlaug Sæmundsdóttir og Hafdís Þóra Hafþórsdóttir hjá Nordic Visitor