Fleiri fjarfundir um fræðslu og innleiðingu

Mjög góð viðbrögð hafa verið við fjarfundum fyrir ferðaþjónustuaðila um innleiðingu á VAKANUM og hefur nú fleiri fundum verið bætt við. Skráning stendur yfir á fund sem sem haldinn verður 4. júní kl. 15-16.

Skráning til miðnættis 3. júní
Nýsköpunarmiðstöð Íslands stendur fyrir fundunum. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að þátttakendur skrá sig á netfangið erla.sig@nmi.is. Gefa skal upp nafn, netfang, heiti fyrirtækis og símanúmer. Þátttakendur fá senda til baka slóð í tölvupósti sem þeir nota til að skrá sig inn á fundinn. Skráningarfrestur er til miðnættis 3. júní.

Fræðslan er hugsuð jafnt fyrir þá sem þegar hafa sótt um þátttöku í VAKANUM og eru að huga að innleiðingu og þá sem hyggja á umsókn. Hámarks fjöldi þátttakenda á hverjum fundi eru 15 manns, bætt verður við fundum eftir þörfum.

Nánari upplýsingar
Allar nánari upplýsingar veitir Erla Sigurðardóttir, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, erla.sig@nmi, sími 522 9491.

Nánar um VAKANN á www.vakinn.is