Fjarnámskeið um fræðslu og innleiðingu 11. október

Mjög góð viðbrögð hafa verið við fjarnámskeiðum fyrir ferðaþjónustuaðila um innleiðingu á VAKANUM, hinu nýja gæða og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar. Skráning stendur yfir á næstu námskeið sem haldin verða 11. október.

Mjög góð viðbrögð hafa verið við fjarnámskeiðum fyrir ferðaþjónustuaðila um innleiðingu á VAKANUM, hinu nýja gæða og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar. Skráning stendur yfir á næstu námskeið sem haldin verða 11. október.

Um er að ræða tvenns konar námskeið:

  • Almenn fræðsla um innleiðingu VAKANS kl. 11-12
  • Fræðsla um öryggisáætlanir kl. 14-15:30.


Skráning til miðnættis 10. október

Nýsköpunarmiðstöð Íslands stendur fyrir námskeiðunum. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að þátttakendur skrá sig á netfangið erla.sig@nmi.is. Gefa skal upp nafn, netfang, heiti fyrirtækis og símanúmer. Þátttakendur fá senda til baka slóð í tölvupósti sem þeir nota til að skrá sig inn á fundinn. Skráningarfrestur er til miðnættis 10. október. Mikilvægt að fólk taki fram á hvort námskeiðið það er að skrá sig.

Fræðslan er hugsuð jafnt fyrir þá sem þegar hafa sótt um þátttöku í VAKANUM og eru að huga að innleiðingu og þá sem hyggja á umsókn. Hámarks fjöldi þátttakenda á hverjum fundi eru 15 manns, bætt verður við fundum eftir þörfum.

Nánari upplýsingar

Allar nánari upplýsingar veitir Erla Sigurðardóttir, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, erla.sig@nmi, sími 522 9491. Fólki er velkomið að hafa samband við Erlu vegna aðstoðar við aðra þætti í VAKANUM og eins ef umræddir tímar henta ekki viðkomandi og verður þá unnið í að setja upp fleiri námskeið.