Ferðaþjónusta bænda í Vakann

Ferðaþjónusta bænda hlaut viðurkenningu Vakans sem veitt var við hátíðlega athöfn á uppskeruhátið félagsmanna þann 16. nóvember 2015

Ferðaþjónusta bænda hlaut viðurkenningu Vakans sem veitt var við hátíðlega athöfn á uppskeruhátið félagsmanna þann 16. nóvember 2015. Á sama tíma fékk fyrirtækið gull umhverfismerki Vakans fyrir áherslur í sjálfbærni og umhverfismálum. 
Það er fyrirtækinu mikill heiður að hljóta viðurkenningu Vakans sem hefur það markmið að efla gæði, öryggi og umhverfisvitund í ferðaþjónustu á Íslandi. 
„Við hjá Ferðaþjónustu bænda höfum frá upphafi lagt ríka áherslu á að efla gæði og sjálfbærni í starfsemi okkar og vinnum markvisst að ná settum markmiðum fyrirtækisins. Viðurkenning Vakans fyrir gæða- og umhverfismál er starfsmönnum fyrirtækisins mikil hvatning og veitir okkur innblástur til að vinna enn frekar að umbótum.“ segir Berglind Viktorsdóttir, gæðastjóri Ferðaþjónustu bænda. 
Ferðaþjónusta bænda er leiðandi í íslenskri ferðaþjónustu og leggur áherslu á náttúru- og menningartengda ferðaþjónustu. Ferðaskrifstofan sérhæfir sig annars vegar innanlands í kynningu, markaðssetningu og sölu á gistingu og afþreyingu hjá íslenskum ferðaþjónustubændum um land allt með yfir 180 gististaði af ýmsu tagi, en þar má finna bændagistingu, bústaði, svefnpokagistingu og sveitahótel. Hins vegar sérhæfir hún sig í fjölbreyttum ferðum um allan heim með íslenskri fararstjórn.
Við hjá Vakanum og Ferðamálastofu óskum Ferðaþjónustu bænda til hamingju með glæsilegan árangur og bjóðum þau innilega velkomin í Vakann.
Á myndinni eru frá vinstri Alda Þrastardóttir Ferðamálastofu, Sævar Skaptason og Berglind Viktorsdóttir frá Ferðaþjónustu bænda og Áslaug Briem frá Ferðamálastofu.